Íslandsmyndir í bók frá 1910 um norrænt handverk

Nafn Vopnafjarðar er töluverður tungubrjótur fyrir útlendinga og í bók sem ber nafnið Peasant art in Sweden, Lapland and Iceland og kom út árið 1910 er nafn þessa austfirska þorps skrifað svona af ókunnum ástæðum: Vayrnapjedwry.

 

Bókin fjallaði um norrænt handverk. Í henni voru bæði merkilegar landslagsmyndir og myndir af handverki sem sýndu í smáatriðum ýmsa muni. Smellið á myndirnar til… [Lesa meira]

Lemúrinn hitti lemúra

Lemúrar, dýrin sem veftímaritið Lemúrinn dregur nafn sitt af, búa eins og frægt er einungis á eyjunni Madagaskar við austurströnd Afríku.

 

Þó er hægt að komast í merkilegt návígi við lemúra á Norðurlöndunum. Skansen í miðborg Stokkhólms er einskonar blanda af Árbæjarsafni og dýragarði sem sérhæfir sig í skandinavískum dýrum — gaupum, elgum og fleira.

 

En þar er einnig hægt að… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: Finnland í Vetrarstríðinu

Ljóshærður finnskur hermaður biður til drottins á þessari þjóðlegu áróðursmynd frá 1940. Vetrarstríðið milli Finnlands og Sovétríkjanna stóð þá sem hæst. Finnska ríkið rak á þessum tíma kröftuga áróðursherðferð gegn sovésku ógninni, eins og sjá má á eftirfarandi… [Lesa meira]

Meðlimir Ku Klux Klan styðja Barry Goldwater sem forsetaefni, 1964

“Grand Imperial Wizards for Goldwater”. Meðlimir rasistasamtakanna Ku Klux Klan mæta til þess að styðja íhaldsmanninn Barry Goldwater sem forsetaefni í forkjöri Repúblíkanaflokksins í San Francisco í Bandaríkjunum, júlí 1964. Þeldökkur maður reynir að halda þeim aftur.

 

Goldwater varð að lokum forsetaefni Repúblíkana en vann einungis sex fylki og 38% atkvæða í forsetakosningunum sama ár, og tapaði því fyrir Lyndon Johnson.

 

Ljósmyndari: Warren… [Lesa meira]

Verdun: Litmyndir af skelfilegasta vígvelli fyrri heimsstyrjaldar

Lemúrinn hefur áður birt merkilegar litmyndir franska ljósmyndarans Jules Gervais-Courtellemont af skrautklæddum frönskum hermönnum við Marne í heimstyrjöldinni fyrri. Til þess að framkalla litmyndir beitti hann svokallaðri “autochrome” tækni, sem var þá nýleg uppfinning.

 

Gervais-Courtellemont tók ekki bara litmyndir við Marne heldur einnig við Verdun, sem var blóðugasti vígvöllur fyrri heimsstyrjaldar. Mánuð eftir mánuð létu stórskotalið Frakka og Þjóðverja milljónir… [Lesa meira]

Lyndon B. Johnson var algjör prakkari: Keyrði um á nasistasundbíl

Lyndon Baines Johnson, 36. forseti Bandaríkjanna, þótti nokkuð alvörugefinn maður sem sýndi jafnan ekki mikil svipbrigði. Hann átti sér þó aðrar hliðar og gat hann stundum verið algjör prakkari.

 

Johnson var einn af þeim heppnu sem náðu að kaupa eintak af Amphicar „sundbílnum.“ Amphicar var þýsk smíði, þótt bíllinn hafði óneitanlega útlitseinkenni bandarískra kagga frá blómaskeiði þeirra. Þess má reyndar geta… [Lesa meira]