Árið 1997 var Astana gerð að höfuðborg Miðasíu-ríkisins Kasakstan. Höfuðstaðurinn var fluttur frá Almaty, borg í suðurhluta landsins, inn í miðju landsins. Astana liggur á steppu þar sem fimbulkuldi ríkir á veturna og miklir hitar verða á sumrin.
Eitt helsta kennileiti borgarinnar er 30 þúsund fermetra pýramídi sem breski arkitektinn Sir Norman Foster hannaði og nefnist Höll friðar og sáttar. Við sjáum bygginguna hér að ofan.
Bayterek-turninn er önnur fræg bygging. Hann er 97 metra hár, til minningar um ártalið 1997. Hönnun hans byggir á þjóðsögu um töfrafugl sem verpti eggi í goðsögulegt tré. Efsti hluti turnsins líkist gullegginu.
Á efstu hæðinni hefur far eftir hönd Nursultan Nazarbayev, fyrsta forseta landsins, verið steypt í gull. Gestir leggja hönd sína í hönd forsetans og óska sér. Nazarbayev hefur verið forseti frá 1989, þegar Kasakar hlutu sjálfstæði frá Sovétríkjunum, og er enn við völd.
Lagt hefur verið til að breyta nafni borgarinnar (nafn Astana þýðir einfaldlega „höfuðborg“) í „Nursultan“ til heiðurs Nursultan Nazarbayev forseta. Ættum við kannski að breyta nafni Reykjavíkur í „Ólafur Ragnar“?
Fleiri myndir frá Astana: