Jólin árið 1944 voru síðustu jólin í Þýskalandi nasismans. Aðeins tæpi hálfu ári síðar hrundi ríki nasista til grunna þegar herir þess voru gersigraðir af Bandamönnum og foringinn Adolf Hitler framdi sjálfsmorð í loftvarnarbyrgi sínu í höfuðborginni Berlín.
En áróðursvél nasistaflokksins var enn í fullum gangi jólin 1944, þrátt fyrir að löngu ljóst væri orðið að Þýskaland myndi tapa síðari heimsstyrjöldinni og að þar í landi, eins og annars staðar, létust þúsundir manna á degi hverjum í hörmulegum stríðsátökum.
Hitler og félagar notuðu kirkjuna og siði hennar eftir hentisemi á valdatíma nasista. Til dæmis þekktist að skreyta jólatré með hakakrossum og öðru nasistaglingri.
Nasistaflokkurinn gaf út sérstakan jólabækling jólin 1944 með titlinum Deutsche Kriegsweihnacht (Þýsk stríðsjól).
Á einni síðunni var jólakveðja frá Adolf Hitler sem ekki getur talist sérstaklega jólaleg: „Öll náttúran eru gríðarstór átök á milli styrks og veikleika, eilífur sigur hins sterka.“
Á annarri síðu var myndin af Hitler við jólatré og eftirfarandi hugvekja frá Jósef Göbbels, áróðursmeistara hans:
„Á þessu aðfangadagskvöldi skulum við hugsa um Foringjann, sem er allstaðar í anda þar sem Þjóðverjar koma saman, og við sameinum krafta okkar í þágu föðurlandsins. Þegar þessu stríði lýkur verður það mikilfenglegra, fallegra og enn ótrúlegra. Það verður stolt heimaland okkar allra. Við lofum Foringjanum nú á þessari stundu að hann geti reitt sig á fólkið sitt á vígvellinum, heima og víða um heiminn. Hann leiðir okkur áfram. Við fylgjum honum.“
Heimild: German Propaganda Archive/Deutsche Kriegsweihnacht (München: Franz Eher, 1944).