Súffragettur voru konur sem börð­ust fyrir kosn­inga­rétti kvenna seint á nítj­ándu öld og snemma á þeirri tutt­ug­ustu, aðal­lega í Bretlandi og Bandaríkjunum.

 

Í mörgum til­fellum var litið á bar­áttu þess­ara kvenna sem stór­hættu­lega glæp­a­starf­semi, sumir köll­uðu þær „mestu ógnina við breska heimsveldið“. Lögreglan fylgd­ist með hverju fót­máli þeirra. Mörgum var stungið í fangelsi.

 

Árið 1912–13 vildi breska lög­reglan Scotland Yard búa til mynd­skrá yfir súf­fra­gettur en kon­urnar vildu ekki láta mynda sig. Lögreglan ákvað því að kaupa ljós­mynda­vél og lét mynda bar­áttu­kon­urnar í laumi í papparazzi-​​stíl, líkt og stundum er gert með með­limi hryðjuverkasamtaka.

 

BBC telur að þessar myndir hafi í raun verið fyrstu njósna­mynd­irnar í sögu Bretlands. (© National Portrait Gallery, London)

 

 

Evelyn Manesta vildi ekki láta mynda sig og því hélt lög­reglu­maður henni fastri á meðan ljós­myndin var tekin. Síðan var átt við mynd­ina og fanta­brögð lög­reglu­manns­ins þurrkuð út.