Video

Crossfire var kjafta­þáttur á banda­rísku frétta­stöð­inni CNN þar sem kapp­ræður voru haldnar á milli hægri og vinstrimanna (eða íhalds­manna og frjáls­lyndra — eins og það heitir í Ameríku). Hannes og Mörður var lík­lega náskyld­asta íslenska birt­ing­ar­mynd sömu hugmyndar.

 

Í mars 1986 mætti eng­inn annar en tón­list­argoðið Frank Zappa í Crossfire. Zappa var harður and­stæð­ingur rit­skoð­unar og taldi að stjórn­völd mættu alls ekki ráða því hvort ein­hver tónlist væri gjald­geng eða ekki. Enda væru engin rök fyrir að banna orð í söngtextum.

 

Zappa, sem reyndar leit á sjálfan sig sem íhalds­mann, mætti í þættinum hinum hægris­inn­aða dálka­höf­undi John Lofton sem taldi að stjórn­völd ættu að banna vissa tónlist til að vernda kristin heim­ili fyrir sóða­lögum rokktónlistarmanna.

 

Árið áður hafði Zappa haldið ræðu á Bandaríkjaþingi um sömu mál, en upp­taka frá því er einnig varð­veitt á hinu alvitra safni YouTube. Zappa bar vitni í sept­em­ber 1985 fyrir framan nefnd öldunga­deildar þings­ins og beindi þar spjótum sínum að sam­tök­unum Parents Music Resource Center, sem var einskonar for­eldra­fé­lag sem stofnað var til að hvetja stjórn­völd til að banna „dóna­lega“ tónlist. Tipper Gore, eig­in­kona Als Gore, var í far­ar­broddi þess­ara samtaka.

 

Video