Hér eru lögreglumyndir af enskum glæpamönnum sem taldar eru vera frá 1930. Þær fundust á flóamarkaði og voru sendar á minjasafn. Myndirnar voru líklega teknar af lögreglunni í Newcastle á Norður-Englandi.
Sýslan sem Newcastle tilheyrir heitir Tyne og Wear og í henni eru rekin skjala– og byggðasöfn sem varðveitt hafa ýmislegt úr þjóðlífinu í sýslunni.
Lemúrinn hefur áður birt myndir frá Tyne & Wear Archives & Museums:
Fangamyndir af 12 konum sem allar komust í kast við lögin í North Shields á árunum 1903 til 1904.
Tyne & Wear Archives & Museums