Video

 

Fjölmiðlar hafa und­an­farið fjallað um dul­ar­fulla konu sem sést hefur í fylgd­arliði hins nýkrýnda ein­ræð­is­herra Norður-​​Kóreu, Kim Jong-​​un. Einhverjir hafa varpað fram þeirri kenn­ingu að þetta sé Hyon Song-​​wol, frá­skilin söng­kona sem Kim litli mun hafa þekkt í mörg ár.

 

Hyon Song-​​wol er ein af mörgum söng­kon­unum sem troðið hefur upp með aðalpopp­hljóm­sveit­inni í Norður-​​Kóreu, Pochonbo Electronic Ensemble. Lemúrinn hefur áður fjallað um þá ágætu sveit hér en þá var það söng­konan Li Kyung-​​​​suk sem söng með sveitinni.

 

Hérna að ofan er lag með Pochonbo og Hyon Song-​​wol, sósíal­íski raun­sæ­isslag­ar­inn Mær á velætt­uðum hesti frá árinu 2005.

 

Textinn ku vera eitt­hvað á þessa leið:

 

Félagarnir í verk­smiðj­unni hlæja og segja

Nú, þeir líta á mig og segja

Ég er mær á velætt­uðum hesti 

Jafnvel eftir erf­iðan vinnudag

hef ég ekki fengið nóg

Hæfileikar mínir eru sem eldingar

 

Þeir segja að ég sé mærin á velætt­uðum hesti

Í dag fór ég í vinn­una á undan öllum öðrum

Hvað hald­iði, nafnið mitt var í dagblaðinu!

Á tímum sem við stökkvum af gleði

Þetta eru verð­laun veitt æskunni

Þeir segja að ég sé mærin á velætt­uðum hesti

 

Á tímum sköp­unnar verkamannaflokksins

Hið ástkæra nýja nafn sem æsku minni var veitt

Hershöfðinginn mikli setti mig á vel­rækt­aðan hest 

Ég lifi til að dásama nafn hans