Lemúrinn hefur verið dug­legur að vekja athygli á músalemúrum, minnstu teg­undum lemúra. Þeir músalemúrar sem birst hafa á síðum Lemúrsins hafa hingað til verið til fyr­ir­myndar, hvort sem það er músalemúr frú Berthe eða músalemúr doktors Shaquille O’Neal. Nú kveður hins­vegar annað hljóð í kút­inn. Í nýj­asta hefti fræði­rits­ins American Journal of Primatology er grein sem varpar dökkri mynd af einni teg­und músalemúra: Grámúsalemúrar (Microcebus mur­inus) éta aðra grámúsalemúra. 

 

Í grein Anni Hamäläinen við Göttingen-​​háskóla í Þýskalandi kemur fram að hún hafi fyrir til­viljun orðið vitni af hroða­legum atburð. Hún hafi verið við rann­sóknir á atferli grámúsalemúra í Kirindy-​​skógi á vest­ur­hluta Madagaskar. Á reglu­bund­inni heim­sókn til músalemúr­anna sá hún lík kven­dýrs hanga á hvolfi á trjágrein.

 

Líkið var rifið á hol og líf­færin á bak og burt. Höfuðkúpan var brotin og heil­inn sundurtættur.

 

Karlkyns grámúsalemúr stóð við líkið „nag­aði framúr­st­and­andi mæn­una af áfergju“. Hamäläinen fylgd­ist með karldýr­inu éta kven­dýrið í tutt­ugu mín­útur — mænu, vöðva og rifbein.

 

 

Hamäläinen, grein­ar­höf­undur, tók þessa hroll­vekj­andi mynd af músalemúrnum að éta jafn­ingja sinn.

 

Þá fjar­lægði Hamäläinen líkið og rann­sak­aði, en þar sem lík­ams­leif­arnar voru sundu­rétnar tókst henni ekki að kom­ast að dánar­or­sök dýrs­ins. Hafði karldýrið myrt kven­dýrið? Eða hafði hann ein­ungis fundið líkið hang­andi í trjá­grein og ákveðið að éta það?

 

Eitt er ljóst. Grámúsalemúrar eru eina teg­und prímata sem vitað er til að éti full­vaxta jafn­ingja sína af sömu teg­und — fyrir utan okkur menn­ina (les­endur Lemúrsins kann­ast vafa­lítið við mannætur).

 

Að éta dýr af sömu teg­und er ekki þó óþekkt meðal prímata. En hingað til hefur, í slíkum ódæð­isverkum, alltaf verið um nýlega fædda unga að ræða. Hið hrotta­leg morð grámúsalemúrs­ins í Kirindy-​​skógi er eins­dæmi í sögu dýrafræðinnar.