Körfuboltastjörnunni, doktornum og heið­urs­mann­inum Shaquille O’Neal er ekk­ert óvið­kom­andi. Þaðan af síður hið ein­staka en við­kvæma dýra­líf á eyj­unni Madagaskar. Flestar hinna fjöl­mörgu teg­unda lemúra sem aðeins á finna á Madagaskar eru í útrým­ing­ar­hættu vegna ólög­legra veiða, hlýn­unar jarð­ar­innar eða ann­ars ofríkis mannanna.

 

Shaq er að sjálf­sögðu miður sín yfir þessu. Til þess að vekja athygli á mál­stað lemúra heim­sótti doktor­inn nýlega dýra­garð í Miami í Flórída og lét taka af sér þessar myndir með lemúr af teg­und­inni músalemúr frú Berthe.

 

Músalemúr frú Berthe er minnsta teg­und prímata — þó hann lík­ist kannski nag­dýri er þetta í raun náfrændi okkar. Meðal músalemúr er um 10 senti­metrar á lengd og vegur 30 grömm. Shaquille O’Neal er hins­vegar 2.16 metrar á lengd og vegur 147 kíló.

 

Nánari umfjöllun Lemúrsins um músalemúr frú Berthe má lesa hér.