Í dag, 19. júní, er haldið upp á dag kven­rétt­inda á Íslandi.

 

Það er vegna þess að konur hlutu kosn­ing­ar­rétt og kjörgengi til Alþingis með stjórn­ar­skrár­breyt­ingu sem stað­fest var 19. júní 1915. Þeim rétti gátu þær fyrst beitt við kosn­ingar 1916.

 

Fyrst var kona kjörin til Alþingis í lands­kjör­inu 8. júní 1922. Það var Ingibjörg H. Bjarnason af Kvennalista. Hér birtum við myndir af tíu fyrstu kon­unum náðu kjöri á Alþingi. Athygli vekur að tíunda konan sem kosin var á Alþingi Íslend­inga var Jóhanna Sigurðardóttir for­sæt­is­ráð­herra, sem fyrst náði kjöri árið 1978.

 

Á vef Alþingis er grein­ar­góður listi yfir allar konur sem kosnar hafa verið á Alþingi.

 

 

Ingibjörg H. Bjarnason

 

Guðrún Lárusdóttir

 

Katrín Thoroddsen

 

Kristín L. Sigurðardóttir

 

Rannveig Þorsteins­dóttir

Ragnhildur Helgadóttir

 

Auður Auðuns

 

Svava Jakobsdóttir

 

Sigurlaug Bjarnadóttir

 

Jóhanna Sigurðardóttir