Foringi þýzka rík­is­ins, Adolf Hitler, sýndi Þing­völlum þann sóma að heiðra hinn helga stað með nær­veru sinni í gær, á öðrum degi Íslands­heim­sóknar sinnar. Blaðamaður Íslands smellti af þess­ari mynd í Almannagjá þegar Foringinn skoð­aði gjánna í fylgd eins helsta aðstoð­ar­manns síns, Alberts Speer, og annarra hátt­settra her­for­ingja í þýzka hernum.

 

Foringinn lét í ljós aðdáun sína á nátt­úru Þing­valla og sagði orð­rétt: „Það er merki­legt að standa hér á þessum stað, þar sem hinn nor­ræni kyn­stofn átti sitt blóma­skeið á miðöldum. Nú, þegar Ísland hefur verið frelsað undan heimsvalda­stefnu Breta og hins gyð­ing­lega auð­valds­sam­særis, mun nor­ræn menn­ing aftur rísa hátt á Þingvöllum.“

 

Þessi fögru orð Foringjans vöktu ein­róma þakk­læti og aðdáun íslenzkra mekt­ar­manna og annarra, sem fengu að fylgj­ast með för Foringjans um Þing­velli. Í dag er búist við að Foringinn skoði flug­vallar­fram­kvæmd­irnar í Reykjavík, þar sem Luftwaffe er að koma sér fyrir til að verja landið fyrir hugs­an­legum gagnárásum hinna svik­ulu brezku her­sveita, sem héðan voru hraktar í fyrra mánuði.“

 

Í HRÆÐILEGUM HEIMI — hvað ef nas­istar hefðu her­tekið Ísland? Tölvugerð mynd Ólafs Gunnars Guðlaugssonar sem birt­ist í þriðja tölu­blaði SKAKKA TURNSINS árið 2008.