Þvottabirnir hafa endrum og sinnum villst til Íslands. Í þau skipti vöktu þessi framandi dýr kátínu meðal Íslendinga, en endalok þeirra urðu þó sorgleg. Lemúrinn rifjar upp sorgarsögu þvottabjarnarins á Íslandi, og í leiðinni, svipaðar sorgarsögur annarra dýra sem álpuðust hingað til lands.
14. þáttur: Sorgarsögur framandi dýra á Íslandi
Header: Útvarp Lemúr
Útvarp Lemúr geymir útvarpsþætti Lemúrsins hjá RÚV og hlaðvarpsþætti hjá Kjarnanum. Hér má finna alla þættina á einum stað, en þeir fjalla um nánast allt milli himins og jarðar!
Umsjónarmenn eru ritstjórn Lemúrsins. Fyrsta þáttaröðin, sem var dagskrá á Rás 1, fékk fimm stjörnur í umfjöllun DV. Sumarið 2014 var Leðurblakan á dagskrá á Rás 1, en hún var einnig á vegum Lemúrsins. Loks gerði Lemúrinn hlaðvarpsþætti fyrir Kjarnann 2015.
Vera Illugadóttir, einn af ritstjórum Lemúrsins, heldur svo úti þáttunum Í ljósi sögunnar á RÚV.
Hvað er í útvarpinu?
Meira á Lemúrnum
Meira á Lemúrnum
-
Hollensk kona mynduð með byssu á hverju ári í 74 ár
-
Pennavinur blakkmetal-morðingja á Íslandi: „Hann skipar mér að gera Ísland heiðið á ný“
-
RÚV árið 1999:„Við Íslendingar erum á miklu hærra menningarstigi en aðrar Evrópuþjóðir“
-
Nýlendustefnan á ljósmynd: Indversk kona með breskan mann á bakinu
-
Hvað ef Hitler væri kokkur frá Vestur-Kanada?