Spámaður skyndibitans, hamborgaratrúðurinn ljúfi Ronald McDonald, hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar á nærri fimm áratuga langri ævi. Þessi besti vinur barnanna kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1963 á McDonalds-stað í Washington DC og birtist síðan næstu tvö árin í sjónvarpsauglýsingum fyrir fyrirtækið. Fyrsti maðurinn sem lék Ronald McDonald hét Willard Scott og var mjög fjölhæfur; hann var veðurfréttamaður og skrifaði einnig morðsögur.