Vídjó

Edward Dwyer var 19 ára gamall og nýbúinn að skrá sig í herinn þegar að fyrri heimsstyrjöldin braust út árið 1914.  Hann barðist við Þjóðverja í Belgíu 1915 og varð yngsti maðurinn til þess að hljóta Viktoríu-krossinn í viðurkenningu fyrir hugrekki sitt á vesturvígstöðvunum.  Hér má heyra upptöku frá 1916 af Dwyer að flytja lag sem sungið var af  bresku hermönnunum:  ,,We’re here because we’re here“ (ísl. ,,Við erum hér því við erum hér“), við stef ,,Auld Lang Syne“.

 

Dwyer lést ári síðar í orustunni við Somme, aðeins 21 ára gamall.  Upptaka þessi er einstök því hún er eina hljóðupptakan af breskum hermanni sem varðveist hefur frá tímum fyrri heimsstyrjaldar.  Upptökuna í heild sinni er hægt að nálgast hér.