Til að lýsa fatastíl Fridu Kahlo nægir engan veginn að segja að hún hafi verið glæsileg til fara. Sem hún var að sjálfsögðu. Val hennar á fatnaði hafði dýpri merkingu, leið til listrænnar tjáningar, leið til að lýsa æviskeiði sem var fullt af sársauka, gleði, vonbrigðum og mögnuðum sköpunarkrafti. Hvort sem um var að ræða klæðnað sem var innblásinn af Tehuana-menningu Mexíkó eða vestrænni klæðnaður, fatnaðurinn var öflug leið til sjálfstjáningar – eins og má til dæmis sjá glöggt á verkinu Tvær Fríður (s. Las dos Fridas).

 

the-two-fridas-las-dos-fridas-frida-kahlo-1939-0ccc8580

 

Frida lenti í alvarlegu umferðarslysi árið 1925 þegar vörubíll skall á strætóbifreið þar sem hún var farþegi. Slysið átti eftir að hafa varanleg áhrif á Fridu en í því brotnaði hryggjarsúla hennar, mjaðmagrind, viðbein og fjölmörg rifbein. Líkamlega átti hún aldrei eftir að jafna sig að fullu og bjó við mikinn sársauka, sársauka sem má lesa í andlitsdráttum fjölmargra sjálfsmynda. Sífelld notkun Fridu á lífstykkjum og misháum skóm má rekja til afleiðinga slyssins, hún hreinlega batt þannig um líkamann – að hann gæti staðið uppréttur. Andlitsdrættir Fridu bera auðvitað á sama tíma merki um ótrúlegt baráttuþrek og elju, hún ætlaði ekki að láta eitthvað rútuslys stöðva sig.

 

Frida lést árið 1954, aðeins 47 ára að aldri. Eiginmaður hennar, Diego Rivera, ákvað að læsa alla persónulega muni Fridu inni á baðherbergi í Bláa húsinu, heimili þeirra í Mexíkóborg. Réttum 50 árum síðar var herbergið opnað. Myndirnar af klæðnaði Fridu voru teknar af japanska ljósmyndaranum Miyako Ishiuchi og eru til sýnis í Michael Hoppen-ljósmyndagalleríi í Lundúnum til 12. júlí 2016.

 

 

tehuana_dress_203943242_465_699_int

Hefðbundinn Tehuana-kjóll. Geggjaður!

 

 

glasses_23049282_465_310_int

„Cat-Eye“-sólgleraugu.

 

 

body_cast_230948234242_465_699_int

Rautt pils á gifs-eftirmynd af líkama Fridu. Sem hún gerði sjálf. Takið eftir hamrinum og sigðinni.

 

 

corset_2039482342_465_698_int

Grænt lífstykki úr gifsi sem Frida gerði sjálf. 

 

 

fringed_boots_239482342_465_308_int

Misháir skór.

 

 

green_silk_lace_skirt_465_685_int

Grænt silkipils.

 

 

makeup_compact_2093842342_465_695_int

Förðunaraskja með mynd af logandi sígó.

 

 

mint_green_bathing_suit_20938411_465_692_int

Myntugrænn sundbolur. Fullkominn.

 

 

mustard_skirt_29183131_465_663_int

Sinnepsgult pils með mögnuðum útsaumi.

 

 

nail_polish_29384231312_465_695_int

Naglalakk.

 

 

prosthetic_leg_with_boot_203948242_465_702_int

Rautt stígvél á gervifæti.

 

-Via Dangerous Minds