Á fallegum vetrardegi 1970 rakst maður á göngu um Ísdalinn í nágrenni Bergen á illa brunnið lík konu í fjallshlíðinni.

 

Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að mánuðina fyrir andlát sitt hafði konan ferðast vítt og breitt um Noreg og Evrópu, en notast á ferðum sínum við ótal mismunandi fölsk nöfn og fölsuð skilríki.

 

En hver var konan í Ísdalnum í raun og veru, og hvað var hún að gera á ferðum sínum?