Fjallagarpurinn og ljósmyndarinn enski, Frederick W.W Howell, tók stórkostlegar ljósmyndir frá Íslandi um aldamótin 1900, eins og Lemúrinn hefur verið duglegur að segja frá. Howell kleif Heklu einhvern tímann á árunum 1890-1900 og hér birtast ljósmyndir úr þeirri för.

 

Hekla var jú frægasta kennileiti Íslands á öldum áður. Því er ekki ólíklegt að þetta illvíga eldfjall hafi verið eitt það fyrsta sem kom í huga Howells þegar hann undirbjó sína fyrstu Íslandsför. Að minnsta kosti tók hann fjölmargar myndir af Heklu þegar hann komst loks í tæri við hana.

 

Myndirnar hér eru ekki í neinni sérstakri röð og lesendur eru beðnir um að benda á mistök sem gætu leynst í myndatextunum, því upplýsingar í þeim eru fengnar úr upprunalegum merkingum myndanna.

 

Fleiri myndir eftir Howell hér.

 

„Selsund. Vikur frá Heklu.“

 

„Gamall gígur við Rauðukamba“

 

Hraun í grennd við Næfurholt á Rangárvöllum við rætur Heklu.

 

„Við Rangá“

 

Hvíld í snjónum.

 

Hraunhöndin.

 

„Útsýni frá tindi Heklu.“

 

„Hæsti tindur Heklu.“

 

„Gígur frá 1845.“

 

„Leiðin niður.“

 

„Fornt hraun við Heklu.“

 

„Suðvestur frá Heklu.“

 

„Hraun og snjór í hlíðum Heklu“

 

Hekluhlíðar.

 

Áningarstaður.

 

Við Heklu.