Ein þekktasta vinkona Robin Williams, leikarans frábæra sem nú er fallinn frá, syrgir vin sinn. 

 

Kókó er rúmlega fertug gömul górilla sem býr á rannsóknarstöð í Woodside í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum. Hún hefur birst á forsíðum New York Times og fleiri stórblaða, um hana hafa verið gerðar tvær heimildarkvikmyndir og skrifaðar margar bækur.

 

Hún hefur öðlast mikla frægð vegna þess að hún er sögð kunna að beita um þúsund táknum í bandaríska táknmálskerfinu og skilja um tvö þúsund tákn til viðbótar.

 

LEMÚRINN fjallaði um górilluna í þætti sínum á Rás 1 í vetur og þá aðallega um þá furðulegu og merkilegu staðreynd að Kókó hefur átt nokkra ketti um ævina.

 

 

Árið 2001 heimsótti Robin Williams górilluna. Samtökin sem sjá um Kókó hafa rifjað upp þessi kynni frá því harmafregnin um andlát stórleikarans barst.

 

„Kókó náði strax góðum tengslum við Robin,“ segir Dr. Penny Patterson, formaður Gorilla Foundation og helsti kennari górillunnar. „Kókó getur skynjað eðli manneskju og hún varð strax mjög hænd að hinum vingjarnlega Robin.“ Kókó var víst mjög þunglynd á þessum tíma því Michael, górilla sem bjó með henni á rannsóknarstöðinni, var nýlátinn. Grínleikarinn góði náði að hressa hana við.

 

anigif_enhanced-8119-1407862007-2

 

Patterson útskýrði andlát Robins fyrir Kókó og hún brást mjög illa við. Samtökin segja að Kókó hafi gert táknin fyrir „kona“ og „sorgmædd“. „Hún beygði sig og varirnar skulfu“.

 

enhanced-22879-1407877510-10

Kókó er sorgmædd. (Koko.org)

 

enhanced-24796-1407878688-12

Kókó var góð vinkona Robin Williams. (Koko.org)

 

Kattagórilla

 

Kókó er orðin nokkuð öldruð á mælikvarða górilla, en þær verða oftast ekki mikið eldri en fimmtugar. Hún hefur alla ævi verið umkringd mönnum á rannsóknarstöðinni í Woodside í Kaliforníu.

 

Górillur eru auðvitað náskyldar mönnum og eru álitnar ákaflega gáfaðar skepnur. Tilfinningalíf þeirra er flókið, górillur geta hlegið, syrgt ástvini og myndað sterk vináttubönd. Þó ýmislegt sé á reiki um hugarstarfsemi þeirra eru sumir á því máli að górillur geti til dæmis hugsað í fortíð og framtíð.

 

Í heimildarmynd Frakkans Barbet Schroeder, Kókó: Górillan sem talar, frá 1978 er fylgst með Kókó og Penny Patterson við leik og störf. Hér eru hins vegar ýmsar skemmtilegar klippur af YouTube:

 

 

Vísindamennirnir sem ólu Kókó upp náðu með ótrúlegum hætti að kenna henni að tjá sig. Málvísindamenn deila reyndar nokkuð um hvers eðlis málskilningur hennar er. Það er þó hægt að slá föstu að górillan kann að beita táknum um fyrir ólíka hluti, til dæmis ólíkar tegundir af mat, dýr, hlutina sína, liti og ýmislegt fleira.

 

Leikarinn góðkunni William Shatner, sem frægastur er fyrir að leika Kirk skipstjóra í Star Trek-þáttunum, kynntist Kókó á sínum tíma og skrifaði um kynnin í sjálfsævisögu sinni Up Till Now. Shatner skrifar að Kókó hafi kunnað orðin „vatn“ og „fugl“. Þegar hún sá önd lenda á tjörn í fyrsta skipti hafi hún blandað orðunum saman í „vatns-fugl“ og notað það fyrir þennan furðulega fugl.

 

Vídjó

 

Sálfræðingurinn og fræðimaðurinn Penny Patterson hefur verið helsti kennari Kókó. Hún hefur skráð fjöldamörg nýrði sem górillan skapar með táknum sínum.

 

Þegar Kókó bragðaði melónu í fyrsta skipti kallaði hún hana „drykkjarávöxt“. Górillur hefur hún kallað „dýra-manneskjur“.

 

Fyrir Kókó er mjólkurís „kalda skálin mín“. Hringur er „fingurarmband“. Jógúrt með appelsínubragði er „appelsínugul blómasósa“. Þegar Kókó verður reið kallar hún fólkið á rannsóknarstofunni „skítugu, heimsku klósett“. Og svo mætti lengi telja.

 

En einna merkilegust er sú staðreynd að Kókó er mjög hænd að köttum. Þegar hún var 12 ára eignaðist hún fyrsta kettlinginn sinn. Kókó fannst gaman að leika sér við þennan loðna og litla vin sinn. Hún gaf honum nafnið All Ball, því hann var alveg kringlóttur. Górillunni fannst skemmtilegast að halda á kisanum og klappa honum.

 

All Ball slapp einn daginn úr húsinu þar sem Kókó býr og stökk út á götu. Þar varð kötturinn fyrir bíl og drapst.

 

Vídjó

 

Kókó brast mjög illa við þeim tíðindum. Patterson, kennari hennar, þurfti að segja henni frá slysinu. Hún segir að górillan hafi gefið frá sér hljóð sem samsvari gráti hjá okkur mönnunum. Eftir atvikið dró hún þá ályktun að górillur syrgi þá sem deyja og geti haft mun dýpra tilfinningalíf en menn höfðu gert sér grein fyrir.