Loftmynd af Manhattan frá júlí 1944.

 

Upphaf mannsins


Margoft hefir vindurinn
tekið fast í hurðarhúninn
á Henderson Place
borið Celiu boð frá einkennilegum stöðum

 

fyrir heppni í dag
spratt hurðin opin
og Celia hélt leiðar sinnar
út í veður og vind

 

kemur eftir drykklanga stund
í dýragarðinn í Bronx,
mildur andvari hrærir blöðin
á Seychelles eyjum

 

hér er upphaf mannsins
og einhyrningurinn gengur frjáls
fyrir foss eftir hvítan
foss í djúpum dal.

 

Það er langt að fara fyrir lítið
en því miður er sunnudagur
og einhyrningur, þegar bezt lætur
AÐEINS
á laugardögum

 

ísbjörninn lætur fallast á
hrammana
ljónið geispar
tígrisdýrið lítur ekki um öxl
Celia í æsku sinni
kemur í dýragarðinn í Bronx

 

 

Kristján Karlsson. Úr ljóðabókinni New York frá 1983.