Vídjó

Breski listrýnirinn og rithöfundurinn John Berger lést árið 2017, níræður að aldri.

Hann er líklega frægastur fyrir heimildarþáttaröðina „Ways of Seeing“ sem hjá BBC árið 1972. Í þáttunum, sem eru fjórir talsins, dregur Berger á snilldarlegan hátt fram hvernig fólk horfir á listaverk sögunnar út frá ólíkum sjónarhóli á hverjum tíma. Berger gaf síðar út bók með sama nafni þar sem sömu hugmyndir koma fram.

Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, útskýrir hugmyndir Bergers svona:

Í tímamótabók sinni um myndlist, Ways of Seeing – eða Leiðir til að sjá – bendir einhver mesti hugsuður tuttugustu aldar, John Berger, á þá staðreynd að sýn okkar á heiminn kemur á undan orðum okkar um heiminn. Barnið horfir og þekkir löngu áður en það getur talað.

stories_rock_968

Berger bendir ennfremur á hvernig sýn okkar kemur á undan orðum í öðrum skilningi. Þ.e.a.s. í þeim skilningi að það er sýnin sem leggur grunninn að stöðu okkar í heiminum sem umlykur okkur. Við útskýrum þann heim með orðum, en orðin geta samt aldrei vegið upp á móti þeirri staðreynd að heimurinn er allt um kring. Sambandið á milli þess sem við sjáum og þess hvað við vitum verður m.ö.o. aldrei útkljáð.

Vídjó

Þáttur 2.

Vídjó

Þáttur 3.

Vídjó

Þáttur 4.

Hér er svo spjall Johns Berger og Susan Sontag um frásagnarlistina:

Vídjó