„Norrænn þokki“: Íslenskar stúlkur sýna listir sínar, 1932

Vídjó

„Íslenskar stúlkur eru alveg jafn hjartahlýjar og glæsilegar og suðrænar meyjar, þrátt fyrir kuldalegt nafn eyjunnar þeirra,“ segir í þessari þöglu mynd frá 1932. Íslenskar stúlkur dansa og teygja sig.

 

„Jafnvægi og tími – fullkomið.“

 

Stúlkurnar virðast vera á íþróttavelli í Bretlandi. Vita lesendur meira um málið?

 

Myndskeiðið er geymt hjá breska filmusafn­inu British Pathé sem Lemúrinn hefur grúskað tölu­vert í.