Fyrsti þáttur Lemúrsins var fluttur á Rás 1 fyrsta október. Árið 1929 voru framandi dýr sýnd á Austurvelli. Þetta voru sjö sauðnautakálfar sem íslenskir veiðimenn höfðu fangað á Norðaustur-Grænlandi. Kálfarnir áttu ekki eftir að eiga hamingjusama ævi á Íslandi. Lemúrinn segir þá miklu sorgarsögu sem íslensk sauðnautasaga er.

 

Hlustið hér á þáttinn (mp3-​​​​skrá hjá hlaðvarpi RÚV).

 

Lemúrinn er á hlaðvarpinu.

 

Umsjónarmenn eru Helgi Hrafn Guðmundsson og Vera Illugadóttir. Lesari er Atli Freyr Steinþórsson.

 

Lemúrinn á vef RÚV.

 

Í þessum fyrsta þætti er einnig sagt frá lemúrum, dýrunum sem þátturinn og vefsíðan draga nafn sitt af, sem og argentíska rithöfundinum Jorge Luis Borges og bók hans um furðuskepnur. Námufuglinn, axarskaftshundurinn og fiskurinn með hundrað höfuð eru meðal þeirra sem þar koma við sögu.

 

lavasoa-dwarf-lemur

Rætt er um lemúra í fyrsta þætti Lemúrsins. En ekki hvað?