Hér sjáum við Seyðisfjörð um aldamótin 1900. Myndirnar tók breski ljós­mynd­ar­inn Frederick W.W. Howell, sem ferð­að­ist til Íslands og Færeyja (Cornell University Library).

 

„Íslendingur og hestur hans“. Í athugasemd á Flickr er sagt að maðurinn sé hugsanlega Lárus Sigmundur Tómasson (1854-1917 – kennari, bóksali og bankagjaldkeri á Seyðisfirði).

 

 

 

 

„Fjölskylda þvær fisk.“

 

 

Howell var mikið á Íslandi á síð­asta áratug nítj­ándu aldar og starf­aði meðal ann­ars sem leið­sögu­maður fyrir erlenda ferða­langa. Hann gekk á Hvannadalshnúk árið 1891, hugs­an­lega fyrstur manna, og fór yfir Langjökul þveran 1899. En Howell drukkn­aði í Héraðsvötnum sumarið 1901 og var jarð­aður að Miklabæ. Lemúrinn mælir með bók­inni Ísland Howells — Howell’s Iceland (1890–1901), eftir list­sagn­fræð­ing­inn Frank Ponzi, en hún kom út árið 2004.

 

„Howell tók þessar myndir á þeim tíma sem nútíma­menn­ing var vart farin að ryðja sér til rúms á Íslandi, og því hafa þær mikið heim­ilda­gildi,“ sagði Ponzi í við­tali við Morgunblaðið árið 2004.

 

Fleiri myndir eftir Howell hér.