Í Rússlandi árið 1921, á tímum borgarastríðsins milli rauðliða og hvítliða, braust út stórfelld hungursneyð í sunnanverðum hluta landsins.  Ástandið mátti rekja til átaka borgarastríðsins, vanstjórnar bolsévika og uppskerubrests vorið 1921.  Povolzhye-hungursneyðin svonefnda var ein sú allra versta í mannkynssögunni, en hún varð fimm milljón manns að bana á innan við tveimur árum.

 

Verst fór fyrir fátæka bændafólkinu á Volgusvæðinu við Úralfjöll, en eins og eftirfarandi myndir sýna tók sumt þeirra upp mannát í örvæntingu sinni.  Myndirnar eru úr bókinni ,,Russia 1904-1924: The Revolutionary Years“ eftir Eric Baschet.

 

Bouzuluk í Rússlandi árið 1921. Sex manns standa yfir leifunum af mannáti í þorpinu.

 

Mannætur ásamt fórnarlömbum sínum í Samara-héraðinu við Volgu, árið 1921.