Dr. Leonard Wilson, merkur enskur læknir, kvaðst hafa verið að rann­saka orsak­irnar, sem knúð hafa kven­rétt­ar­konur á Englandi til þess að hefjast handa eins og þær hafi gert með steinkasti og öðrum illum látum, — og hann seg­ist hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, að þær þjáist af sjúk­dómi, er hann nefnir »upp­hlaups brjálofsa«.

 

Hann segir enn­fremur, að mik­ill fjöldi kven­skóla­kenn­ara í land­inu þjáist af þess­ari sýki, og telur það hina mestu hættu fyrir fram­tíð lands­ins, að láta börn stunda nám hjá slíkum konum, — með því að áhrif þau, sem þessir kenn­arar hafi á nem­endur sína, séu hin skað­leg­ustu, og muni, er börnin stækka, olla mót­þróa gegn allri stjórn i landinu.

 

Hann ræður brezku þjóð­inni til þess, að senda ekki börn sín á neina þá skóla, er hafi þenn kven­kenn­ara, sem vit­an­legt sé að haldi fram jafnréttiskenningunni.

 

Með öðrum orðum: Hann ræður skóla­nefndum lands­ins til þess að banna þeim konum kenslu­at­vinnu, sem skoða sig hafa rétt til að njóta almennra mann­rétt­inda í landinu.“

 

Svipan, 1. júní, 1912.