Myndin, sem þessi ljós­mynd er af, vakti mjög mikla eft­ir­tekt á sýn­ingu Lofts [Guðmundssonar ljós­mynd­ara]. Hún var gerð með sér­kenni­legum litum og merki­legum skiptum milli ljóss og skugga, sem minntu á Rembrandt.

 

Myndin seld­ist strax á eftir sýn­ing­unni. Hún sýnir elzta ljós­mynd­ara á Íslandi, Daníel Daníelsson.“

Tímaritið Listviðir, 2. tbl. 1932.

 

Daníel starf­aði meðal ann­ars með Sigfúsi Eymundssyni ljós­mynd­ara og tók mynd­ina hér af neðan af skemmdum eftir Suðurlandsskjálftann 1896, en margir telja að hún sé fyrsta íslenska frétttaljósmyndin.

 

Mynd: Daníel Daníelsson, 1896.