Árið 1943 var í Reykjavík haldið upp á að 32 ár voru liðin frá falli keis­ara­stjórn­ar­innar í Kína. Ísland var, eins og allir vita, á yfir­ráða­svæði banda­manna í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Kínverjar voru banda­menn Bandaríkjanna í stríð­inu gegn Japönum og því var haldin mikil sam­koma í húsa­kynnum Bandaríkjahers til að fagna á þessum kín­verska þjóða­há­tíð­ar­degi. Jón Sen, íslensk-​​kínverskur tón­list­ar­maður, lék á fiðlu á samkomunni.

 

Japanir réð­ust inn í Kína í aðdrag­anda síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar og lögðu landið í rúst. Áður en að þeirri inn­rás kom ríkti þó lít­ill friður í þessu fjöl­menn­asta landi ver­aldar en flókið borg­ara­stríð ríkti í land­inu þar sem stríð­andi fylk­ingar börð­ust um völdin í því tóma­rúmi sem mynd­að­ist eftir fall keis­ara­stjórn­ar­innar árið 1911. Chiang Kai-​​shek, úr Kuomintang-​​flokki, var leið­togi Kína í stríðinu.

 


Þjóð­há­tíð­ar­höld Kínverja í Reykjavík


Kínverjar, sem nú eru staddir hjer á Íslandi hjeldu hátíð­lega 32 ára sjálf­stæðisaf­mæli Kína hjer í bæ s.l. sunnudag.

 

Voru saman komnir í einu sam­komu húsi hers­ins um 100 Kínverjar, sem eru í Bandaríkjaher og flota og ennfremur nokkrir Kínverjar sem eru á amer­ískum kaup­skipum hjer við land.

 

Frú Oddný Sen og börn hennar voru einnig við­stödd og Jón Sen skemti með ein­leik á fiðlu, en Skúli Guðmundsson ljek undir.

 

Allmargir for­ingjar úr her og flota voru á hátíð­inni, þar á meðal Key hers­höfð­ingi og Wentworth flotaforingi.

 

Margar ræður voru fluttar á kín­verskur og ensku og ýmis­legt til skemtunar.

 

Byrns skip­herra sýndi kvik­myndir frá ferð sem hann fór í til Kína og að lokum var fram­reiddur kín­verskur matur.

 

Eftirfarandi skeyti var sent frá sam­kom­unni til Shiang Kai Shek hers­höfð­ingja og for­seta Kína og frúar hans:

 

„Við Kínverjar í her, flota og kaup­skipa­flota Bandaríkjanna í hinu fjar­læga Íslandi, sem höfum komið saman til að minn­ast 32 ára sjálf­stæðisaf­mælis Kína, sendum yður og kín­verska hernum og þjóð­inni kveðjur okkar og sigurheit“

 

Morgunblaðið, 12. októ­ber 1943

 

 

 

 

 

 

 

Jón Sen.

Á þess­ari mynd sjáum við Jón Sen (1924–2007). Hann var sonur Oddnýjar Erlendsdóttur Sen og Kwei Ting Sen, kín­versks pró­fess­ors. Hann bjó fyrstu ár ævi sinnar í Kína en flutti til Íslands árið 1937 eftir inn­rás Japana í Kína. Hér má lesa bráð­skemmti­legt við­tal við hann sem birt­ist í Morgunblaðinu árið 1995: http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1826646


 

Chiang Kai-​​shek, Franklin D. Roosevelt og Winston Churchill hitt­ust í Kaíró í Egyptalandi í nóv­em­ber 1943.