Video

 

Tyrkinn Orhan Gencebay er einn af heims­ins fremstu leik­urum á tyrk­neska strengja­hljóð­færið baglama eða saz. Hann er líka söngv­ari, frum­kvöð­ull á sviði tyrk­neskar dæg­ur­tón­listar, kvik­mynda­stjarna og alltaf með óaðfinn­an­lega snyrti­legt yfir­vara­skegg.

 

Hér flytur hann lagið Hatasız kul olmaz (eng­inn er full­kom­inn). Þetta er atriði úr Crossing the Bridge, stór­góðri heim­ild­ar­mynd Fatih Akın (Gegen die Wand, Auf der and­eren Seite) um tón­list­ar­lífið í Istanbúl.

 

Takið endi­lega eftir glæsi­legu mál­verk­inu á veggnum sem sýnir hann sjálfan spila, jafn­vel, að því er virð­ist, í sömu skyrtu.