Þeir Íslend­ingar sem hafa eytt ein­hverjum tíma á meg­in­landi Evrópu kann­ast senni­lega við að grípa með sér döner þegar hungrið steðjar að. Flestir sem þessi upp­grip hafa stundað, kann­ast senni­lega einnig við að hafa verið undir áhrifum áfengis á sama tíma. Eða þá kann­ast kannski eng­inn við þetta?

 

Í öllu falli hefur reynst erfitt að verða sér úti um góðan döner á Íslandi, með fullri virð­ingu fyrir Kebab-​​húsinu sem er starf­rækt á tveimur stöðum í Reykjavík. Þar hefur verðið senni­lega eitt­hvað um að segja, sem skilur ein­fald­lega eftir sig slæmt bragð í munni. Það er bara rangt að þurfa að borga jafn­gildi 7–8 evra fyrir döner.

 

En nú er komin lausn á þessu aga­lega vanda­máli. Matargagnrýnandi breska blaðs­ins The Guardian, Tim Hayward, sýnir hérna hvernig á að búa sér til sinn eigin döner. Leiðbeiningarnar eru skýrar og skil­merki­legar, og fylgja ljós­myndir hverju skrefi. Hayward stingur upp á að notað sé lamba­kjöt, en í raun má nota hvaða kjöt sem er. Þá eru þetta auð­vitað leið­bein­ingar frá Bretlandseyjum, en mis­mun­andi útgáfur þessa lostætis skipta hundruðum, ef ekki þúsundum. Eftir stendur að með þessum leið­bein­ingum má fá kjötið í ákjós­an­legu formi, og síðan er ein­fald­lega hvers og eins að laga döner­inn að sínum smekk.