Video

 

Sýrlenska tón­skáldið og píanó­leik­ar­inn Malek Jandali flytur ásamt Rússnesku fil­harm­ón­íu­sveit­inni lagið „Frelsi: Sinfónía Qashush“.

 

Jandali er upp­al­inn í borg­inni Homs, sem nú sætir stöð­ugum árásum sýr­lenska hers­ins eftir að borg­ar­búar vog­uðu sér að mót­mæla ógnar­stjórn Bashars al-​​Assad og kóna hans.

 

Nafn verks­ins vísar til söngv­ar­ans Ibrahim Qashush sem var myrtur með hrotta­fengnum hætti fyrir þær einar sakir að syngja bar­áttu­söng gegn Sýrlandsstjórn: „Hypjaðu þig, Bashar!“ sem Langtíburtistan hefur áður fjallað um.

 

Í mars í fyrra samdi Jandali samdi lagið „Watani ana“ (Ég er föð­ur­land mitt) og flutti á útifundi til stuðn­ings sýr­lenskum mót­mæl­endum í Washington DC í Bandaríkjunum, þar sem hann er nú búsettur. Nokkrum dögum síðar réð­ust örygg­is­lög­reglu­menn heim til for­eldra hans í Homs og gengu í skrokk á þeim. Þau komust naum­lega lífs af, flúðu land og búa nú með syni sínum í Bandaríkjunum.

 

 

Jandali mun gefa út plöt­una Emessa í mars, til­eink­aða stríðs­hrjáðri heima­borg sinni.