Í borg­inni Görz í Austurríki bar það til um miðjan janúar síð­astl., að tvö börn voru skilin eftir ein í her­bergi ásamt stórum ketti. Þetta var 4 ára drengur og 6 ára stúlka. Þau tóku nú að leika sjer að kett­inum og voru all harð­leikin við hann.

 

Loks fundu þau upp á því, að binda um rófu hans dag­blað­pappír og kveykja svo í öllu saman. Kötturinn varð afar íllur við, hljóp hann fyrst í svein­inn og reif hann allan í framan, hann dó. Síðan gerði hann stúlk­unni sömu skil, og lifði hún stutt eftir.

 

Maður, sem bjó í hús­inu, kom til að hjálpa börn­unum, en kött­ur­inn rjeðist framan í hann og blind­aði hann á báðum augum.“

 

Þessi hræði­lega saga birt­ist í dag­blað­inu Vísi þann 5. mars árið 1913, undir liðnum ‘Frá útlöndum’, ein af tveimur erlendum fréttum í Vísi þann dag­inn. (Hin fjall­aði um hugs­an­lega raf­lýs­ingu í Sankti Pétursborg.) Borgin Görz er nú í Ítalíu og betur þekkt sem Gorizia.

 

 

Sigurður Þór Guðjónsson fann þessa frétt og birti upp­haf­lega á Facebook-​​síðu sinni. Myndina tók Wolfgang Hermann.