Video

Stöffið (The Stuff) er hryll­ings­mynd frá 1985 um ljúf­fengan en dul­ar­fullan hvítan eftirrétt.

 

Maður finnur lím­kennt hvítt sull í helli einum. Hvíta sullið er afar gott á bragðið og birt­ist fljót­lega í hálfs­lítersum­búðum merkt THE STUFF í hillum versl­ana.

 

Innrás Stöffsins á hinn stóra eftir­étta­markað kemur sér illa fyrir ísfram­leið­endur og önnur mat­væla­fyr­ir­tæki. Þau leiða því hesta sína saman og ráða iðnnjósn­ar­ann og fyrr­ver­andi FBI-​​manninn David „Mo“ Rutherford til að rann­saka þessa nýju og vin­sælu vöru.

 

Mo kemst fljót­lega að því að Stöffið er hræði­lega hættu­legt sull því það er hvorki meira né minna en lif­andi vera, sník­ill sem nær­ist á heila­búi manna og breytir neyt­endum sínum í nokk­urs konar afturgöngur.