The Shaggs var stúlknatríó frá Fremont, New Hampshire, sem hefur hlotn­ast sá vafa­sami heiður að vera iðu­lega titluð versta hljóm­sveit allra tíma.

 

Í gegnum tíð­ina hefur frum­samin tónlist þeirra af plöt­unni Philosophy of the World (1969) virkað sem seg­ull á hver þau nei­kvæðu lýs­ing­ar­orð er tjáir að nefna sem fólk grípur til þegar úthúða skal tón­listar­fólki sem mis­þyrmt hefur hlustum þeirra: lag­leysur, falskur söngur, van­stillt hljóð­færi, takt­leysi og hlægi­leg texta­smíð. Allt á þetta vel við um The Shaggs.

 

Faðir systr­anna Dorothy, Betty og Helen Wiggins var afar hjá­trú­ar­fullur maður og þegar ýmsir spá­dómar móður hans heit­innar höfðu ræst, ákvað hann að leggja sig fram um að láta annan til við­bótar ræt­ast – nefni­lega að dætur hans yrðu vin­sælar tónlistarkonur.

 

Austin Wiggins dró því tán­ings­dætur sínar úr námi og sendi þær í tón­list­ar­nám­skeið og skömmu síðar voru The Shaggs byrj­aðar að koma fram á skemmt­unum. Eftir nokkra tón­leika þar sem púað var við­stöðu­laust á syst­urnar, auk þess að það kom fyrir að tómum gos­flöskum væri fleygt í þær, ákvað faðir þeirra að nú væri kom­inn tími á að festa snilld­ina á seg­ul­band. Þegar tækni­maður upp­töku­vers­ins stakk upp á því að mögu­lega þyrftu syst­urnar að læra aðeins betur á hljóð­færin and­mælti Austin og sagði að það þyrfti að drífa þetta af… while they‘re still hot.

 

Video

 

Þó að ýmis­legt and­styggi­legt hafi verið sagt um The Shaggs („þær hljóma eins og lóbótómíseruð útgáfa af Von Trapp fjöl­skyld­unni “ – The Rolling Stone), eru margir sem hrif­ist hafa af tónlist þeirra – þar á meðal Frank Zappa, sem lét hafa eftir sér í við­tali í Playboy að Philosophy of the World væri ein af sínum eft­ir­lætis hljóm­plötum og að The Shaggs væru betri en Bítlarnir.

 

Þessi ein­staka blanda af hryn­brenglun, tónklessum og barns­legri ein­lægni hefur veitt yngri kyn­slóðum tón­list­ar­grúsk­ara inn­blástur og ánægju — og þar með má ef til vill segja að spá­dómur ömmu Wiggins-​​systranna hafi ræst, undir óvæntum formerkjum.

 

Video